RockYou slideshow | View | Add Favorite





<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed


Sep 24, 2006
Flutningar síðu

 

 Hæ krakkar...

Ég er líka flutt...er að herma eftir lærisveinku minni í bloggheiminum og er farin yfir á miklu flottari og glæsilegri síðu..

www.evaruza.bloggar.is

Er so bara að vinna í að gera hana sem glæsilegasta..mæli með henni við alla í bloggruglinu


Posted at 02:35 pm by evaruza
Make a comment  

Sep 14, 2006
er að vinna í því að komast upp úr blogglægðinni ógurlegu

Skoooo

Til að bæta ykkur upp tapaðan tíma úr mínu´lífi, þá hef ég sett mér það geðveika markmið að blogga eins og mmmmmmóóóóó fóóóó næstu daga.

Ég fékk þetta líka svakalega hláturskast í tíma í dag með henni erlu. Málið er það, að maður má ekki fá hláturskast í skólanum, en það er bara svvvoooooo svakalega erfitt að halda í sér, þegar gellan við hliðina á mér er alltaf að trufla mig og hlæja og grenja eins og ég, ég hélt í alvöru að ég væri eina manneskjan sem grenjaði svona svakalega í hláturskast, en hef komist að því að Erla perla geriri það líka. Bara tár um leið og hún brosir.

Sko nebblega í fyrsta tímanum okkar í skólanum fengum við svo svaðalegt kast að hor og slef var farið að leka niður um allt og tárin runnu eins og við værum bara staddar í jarðaför....í dag fegnum við svo aftur kast..mínus hor og slef en plús tár..HJÁ SAMA KENNARANUM!!!! Verst í heimi, en sjiii hvað er gaman að vera í hláturskasti þegar maður má það ekki.

Vó alltí einu blokkeraðist heilinn minn...man ekkert hvað ég ætlaði að skrifa næst.....

Allaveganna, held að ég sé að detta upp úr þessar blogglægð sem hefur verið að hrjá mig í sumar..

æji nenni ekki meir, man ekkert hvað ég ætlaði að segja eða skrifa..er farin í sturtu, very long dagur framundan.

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIРELSKU BESTA HOLY SUNSHINE!!!!!!

..cioa amigos


Posted at 05:18 pm by evaruza
Comments (8)  

Sep 13, 2006
Jóóóóóóóó píps!!!!!

Voooooóóóóóóóóó ég man passwordið inn á bloggið!!! Hélt að mér yrði bara neitaður aðgangur inn, svo ógó langt síðan mar hefur setið hér sperrtur að rita eitthvað spennandi fyrir óþreyjufulla aðdáendur mína.

Mikið að gerast þessa dagana. Maður er á fullu í skólanum, í endalausum prófum og alltaf í spennufalli með hausverk eftir erfið ensku próf um allt sem tengist flugi. Ógeðslega erfitt, en við, gengið, Tinnsa, Rex og strumpurinn Erla erum að proffast í gegnum allt klabbið. Alltaf með 9 komma eitthvað...en við vinnum sko alveg fyrir því. Þrælum okkur út alla daga að læra. Æðislegar.

Ég og elsku....

fallegasti, yndislegasti, fyndnasti og skemmtilegasti maðurinn minn í öllum heiminum erum búin að vera saman í 6 ÁR OG 5 DAGA!!!!!

Time flies, finnst svo stutt síðan við hittumst fyrst á Broadway-Sálarballi og

                                                     keluðum alla nóttina.

Ohhhhhh, en samt finnst mér við búin að vera alltaf saman. Æji fattiði mig. Þessi elska er það allrabesta sem komið hefur fyrir mig í lífinu, og ég gæti ekki verið hamingjusamari en ég er í dag. Í ALVÖRU SKO!!! Það er alltaf svo gaman hjá okkur og ég er svo geðveikt skotin í honum...og hann í mér. Bara fæ ekki nóg af honum og af því að segja ykkur hvað hann er mikið yndi.

Týpískt að allir sem hafi lesið síðuna mína, séu hættir því, því ég blogga aldrei. Og ég geðveikt að leggja metnað í þetta og enginn skoðar

OOOOOOOOOOOOOOOJJJJJJJJJJJJJJJJ ÞAÐ ER GEITUNGUR Á TÖLVUSKJÁNUM, BÍÐIÐI AÐEINS.......................

.......................hORBJÓÐSLEGA ÓGEÐSLEG HELVÍTIS KVIKINDI. sMASSAÐI HANN Í DRASL og núna er ég skjálfandi í hnjánum því ég var so hrædd og með ógeðis klígju. Akkur eru þessir andskotar til yfirhöfuð, ekki borða þeir köngulær, því þær eru útum allt líka úti.

Ég er brjáluð pæja alltaf í skólanum. Maður getur nebblega ekki bara hent sér í joggarann og hlaupið út, því það er krafist snyrtilegs klæðnaðar, þannig að ég er alltaf pæja í skólanum..eða reyni það. Vissi sko ekki að ég gæti þraukað sona lengi alla daga vikunnar, en þetta er hægt. Hef t.d. alltaf dáðst af henni Kötu araba, alltaf svo fín og flottum fötum, en ég get þetta líka sko, alveg greinilega.

En sjiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii, er alveg vibba svakalega þreytt, ég skal LOOOFFFA  að REYNA að vera duglegri að blogga, en tha thing is, að maður er alltaf svo lengi á kvöldin í skóló, so kannski fer maður að vinna beint eftir hann og alla daga sem maður er ekki að vinna, er maður svo þreyttur að maður vill helst fara að sofa klukkan 21.

En er farin að kela við fallegasta gaurinn í geiminum...bæææææ

p.s. nenniði að kommenta og segja mér hvað þið söknuðuð mín mikið...bara so maður finni smá hvað maður er ómissandi partur í lífi ykkar


Posted at 05:46 pm by evaruza
Comments (4)  

Aug 27, 2006
Afmælisstrákur

 

Til Hamingju með afmælið elsku litli kútur...Gvöð mér finnst svo stutt síðan þú skaust í heiminn útúr henni mömmu þinni

Já það er sko ár síðan þessi var tekin...en vírrd, finnst svo stutt síðan

Já fólk, tíminn flýgur áfram frá þeim sem skemmta sér vel í lífinu, hann Róbert er orðinn eins árs og Amelía líka, ég er að verða gömul og krumpuð og sjitt, bara næstum 60ára  eða eitthvað...En maður á að vera þakkklátur fyrir það að eldast, alltof margir sem fá ekki tækifæri til þess....því miður

Var að koma heim úr vinnunni, langur dagur framundan sem felst í vinnu, skóla og svo aftur vinnu, en maður lætur sig hafa það..

Elska ykkur öll, og þá sérstaklega sigga...ciao belle


Posted at 04:56 pm by evaruza
Comments (4)  

Aug 24, 2006
Hahahaha, hæ

Jæja, þá er myphotoalbum búin að loka á mig, skil ekki rassgat í bala í því sem er sagt þarna, eitthvað voða fúlir því ég fer ekki inná eitthvað fokk sem ég skil ekki, tala bara ekki við sona útlendinga. Auglýsi hér með eftir með góðri myndasíðu þar sem maður getur hlaðið inn myndum af vild. Anskotans vesen a þessu pakki, búin að koma mér hérna fyrir í svaka stellingar og ætlaði að henda inn fullt af spánarmyndum, en leiter verður það að vera.

Fokk, gleymdi að segja ykkur frá einu sem skeði á Spáni og ég fór alveg í mergjað brjálæðisfýlukast í bílnum. 

Við að leika á trampólininu að prófa self-timerinn á camerunni, á veitinigastaðnum sem við vorum á...bara 2,ahahah lúðapar

...elska hann meira en allt

Hahahaha, sona var trippið í klukkutíma, alveg sama um allt sem hún ver sett í, ÓGEÐSLEGA FYNDIÐ

Tinnsa mín og elsku bestasti gautalingurinn okkar

Pabbi...sagðist vera eins og Eric Cantona, ahahaha mega fyndinn gaur alltaf

Debbý dúlla með litla gullmolann sinn

Dúllur, mamman mín fallegasta og Hrefna yndi frænka

Svalur að versla í H&M..hahahaha, geðveikt að leika sér með allskonar hatta og ég að taka myndir, hvað ætli fólk hafi haldið..æji dúllur við að versla, gegt gaman

Var semsagt að koma úr Carrefour, þar sem ég hafði látið framkalla 802 myndir takk fyrir, MÓMENT SEM KOMA ALDREI AFTUR FATTIÐI, allavega, var líka búin að framkalla helling af spánarmyndum, eftir aðeins 1 viku úti, en svo var ég eitthvað að fikta í bílnum á leiðinni til baka í myndavélinni og DELETAÐI ÖLLUM FOKKINGS MYNDUNUM SEM ÉG VAR BÚIN AÐ TAKA!!!!!! Og mín fékk þetta líka svakalegasta frekjubrjálæðisfýlukast útí alla sem yrtu á mig það sem eftir lifði bílferðar, sverð það var næstum farin að grenja. En sem betur fer var ég búin að framkalla allar spánarmyndirnar, en varð svo brjáluð, því ég átti nottlega eftir að setja þær í tölvuna og netið. En það var nú bara vika liðin, þannig að ég tók alveg fullt og þarf bara að skanna hinar inn, bar FOKKINGD VESEN SKILJIÐI.

Var alveg eins og brjálaður smákrakki aftur í með geðveikan fýlusvip, þangað til við komum heim og Siggi asni fór að fíflast í mér og skemmdi fýluna sem ég var búin að ákveða að vera í aðeins lengur. En nei, hann þurfti endilega að skemma hana og láta mig hlæja...æji mar má ekki vera í fýlu í útlöndum..bara stundum þegar maður deletar öllum myndunum...

(Setti smá forplay inn þarna uppi, myndir frá spáni, hinar koma inn þegar ég hef fundið myndasíðu)

En fórum að sækja stundarskrána okkar í dag, ég, rex, tinnsa sys og erla strumpur.

VAR ÞAÐ VANDRÓ?????HUUUMMMMM, JÁAÁAAAAAÁ!!!

Afhverju? Af því að ég og REgína Diljá vorum eins og litlar busastelpur að mæta í 1sta sinn í menntó, við flissuðum af öllu í sýningarferðinni um skólann, sem við þekkjum nottlega eins og handarbakið á okkur.

VAr eitthvað svona fyndið? NEI, NEFNILEGA EKKI!!!! Við bara biluðumst úr hlátri yfir öllu sem var sagt, og geðveikt kjánalegar að reyna að halda hlátrinum niðri, orðnar eldrauðar í framan með hausverk og allt. Stóðum aftast og máttum ekki líta á hvor aðra án þess að pissa í okkur. GEÐVEIKT VANDRÓ!!! (Erum bæ ðö vei að farað verða fluffur...vonandi, jeij gaman.)

Sem betur fer var Auður Ósk ekki á staðnum, sjitt, vil ekki hugsa þann bælda hlátur til enda...

FOOBALLER´S FOKKINGS WIFES!!!! Eigum við eitthvað að ræða þann svaðalegasta þátt ever. ER ógeðslega fúl yfir að síðasti þátturinn í þessari seríu sé búinn, nú tekur löng bið við eftir næsta. Endaði ógeðslega spennó. Mér finnst að Tanya Turnar eigi að fá Óskarinn, elska þessa beyglu, mesta bitch ass mother fucker ever, ahahaahahahhaa, vangefið góð!!!! ÆTla að hringja í forsvarsmenn Óskarsverðlauna-akademíunnar...

En ég er Óskarsverðlaunahafi fyrir að vera orðin sona dúleg delpa að blogga...bæææ


Posted at 05:32 pm by evaruza
Comments (4)  

Aug 22, 2006
mennó

Ég og FALLEGI maðurinn minn

Menningarnótt liðin í allri sinni dýrð og gleði, ég var að vinna hjá pabbaling..aðeins lengur en áætlað var..rEgínu til mikillar gremju, þannig að ég komst ekki til minnar elsku fallegustu og bestu vinkonu. En liðið kom til mín.... ég var með gullgallann bara með mér í vinnunni og skellti mér í dressið þegar ég var off the hook. Sigginn minn mætti fyrstur manna með kalla og Ingó í eftirdragi og það er óhætt að segja að áfengið hafi aðeins verið komið í blóðið.

Stuttu seinna mættu 3 ungar fljóðir,Ása, Natasha vinkona mín:) og REx, mjög svo fagrar og ein alveg áberandi mikið ölvuð. Sú ölvaða var að fagna þeim merka áfanga að hún var orðin 23 ára. Þannig að hún var búin að sulla í sig áfengi fyrir 23 manns. Þetta var hún Regína mín. Hún og Siggi voru gott team, bæði jafn sótölvuð og fyndin.

F'orum á Hverfis og Hressó og allstaðar vorum við VIP, vegna þess að hann Ingó er einhver lax á 365 og var með VIP inn á alla skemmtistaði bæjarins, frekar næs á eins annasömu kveldi eins og menningarnótt er. Einhvern vegin endaði ég svo ein með strákunum, allar stelpurnar farnar heim, en sjitt hvað var gaman hjá okkur, Kalli hélt að hann væri Shakira allt kvöldið með mjaðmahnykki í allar áttir og ég meig næstum í mig af hlátri, Siggi var svo damn hot að ég hefði getað tekið hann og borðað, sem ég gerði er heim kom. Skildi rétt eftir lærið á honum.

Svo enda'i kvöldið á því að ég og Siggi vorum bara ein eftir á Hressó að dansa af okkur rassgatið alveg að fíla hvort annað, tónlistina og lífið í botn. ÞAð var svo ógeðslega gaman hjá okkur, og um klukkan 6.30 vorum við að staulast í bílinn heim. Já fólk,Ruz is back on the djamm, get ég sagt ykkur....

En klukkan er 00:54, er of þreytt til að skreyta bloggið, REx er búin að setja inn myndir frá kvöldinu, tékk it..

peace out


Posted at 05:35 pm by evaruza
Comments (3)  

Aug 18, 2006
I´MMMMM BBBBAAAACCCKKK

Farin að sakna mín?????!!!!!

Já það ætla ég að vona, hélduð þið að ég væri hætt...næstum því kannski, en onnnei, svík ekki aðdáendur mína svo auðveldlega.

Þannig var nú með mál og vexti að við hjónakornin tilvonandi eftir 10 mánuði fórum til Espanjol með fjöllunni í heilar 3 vikur, og ég var nýbúin að heyra í fréttunum að bófarninr væru alltaf að lesa blogg hjá fólki og so ræna þeir hús hjá þeim sem þeir vita að enginn er heima, og það er sko ástæðan fyrir því aðég skrifaði ykkur ekki kveðjubréf áður en við fórum. Maður þarf sko að vara sig á bófunum sem ganga lausir. En nú erum við komin heim, geðveikt æðisleg og brún, ég vildi að maður gæti keypt sona lím sem límir brúnkulitinn fast við húðina.

Maður puðar allan liðlangan daginn við að vörka tanið, og svo lekur það af manni um leið og flugvélin fer í loftið.

Siggi hatar spánverja, enginn talar ensku, ekki einu sinni bankastarfsmenn og siggi var alveg að verða geðveikur í einni búðinni sem vildi ekki taka debetið mitt því við vorum ekki með passann með. Ég sagði dömunni nú að allar upplýsingar um mig væru aftan á því, en hún hristi hausinn og sagði ,, ohh para nombre" Si, si sagði ég og sýndi henni gullfallega mynd af mér aftan á kortinu(síðan ég var 17, ógeð) og svo nafnið mitt og allt. Það er meira að segja mynd af mér og sigga á faðmlögum framan á kortinu, en hún skildi ekki rassgat neitt og vildi ekki renna kortinu í gegn. Siggi var' alveg eldrauður í framan af reiði, og sagði bara ,,jú stjúpid pípol, gó and lörn english!!!! Maðurinn minn er svo úber svalur þegar hann tekur sig til.

Nú við fórum svo í þessa risa matvöruverslun aftur 2 dögum seinna og versluðum, með passan, komum að kassanum og sat ekki vinkona okkar þar, örugglega með hnút í maganum þegar hún sá að brjálæðingurinn var kominn aftur með konunni sinni. Ég rétti henni debbann og hún horfði á mig kjánalega, ég rétti henni passan og það eina sem hú gerði var að athuga hvort nafnið stemmdi!!!!!

Æji gvuð, kortið er skreytt mér alveg hægri vinstri en samt trúði hún því ekki að þetta gæti hugsanlega verið ég!!!! Ógðeslega tregt og pirrandi lið.

Nú Siggi lenti næstum í slagsmálum 2var sinnum útaf bílastæði, ég var farin að halda að Siggi væri bara spánverji, alveg geðveikt að rífast við einhvern dúdda sem ætlaði að ýta bílnum okkar úr stæði sem hann hélt því fram að hann ,,ÆTTI"

Minn maður hélt sko ekki, maður þarf að gefa stefnuljós svo að maður geti sagt að maður ,,eigi" stæði. Þeir hnakkrifust eins og asnar út á götu og ég geðveikt kjánaleg við hliðiná mínum manni, vissi ekki alveg hvort ég ætti að draga sigga í burtu eða kýla hinn í magann og hlaupa í burtu, með sigga í eftirdragi. Að sjálfsögðu gerði ég Sigga grein fyrir því á milli öskra, að maðurinn gæti verið með hníf innanklæða og stungið hann, hef sko alveg séð það í bíómyndum. Maður veit sko aldrei hvað þessum spánverjum dettur í hug.

 En við komumst lifandi frá þessu rifrildi, og ég teymdi manninn minn niður í bæinn og gaf honum bjór til að róa taugarnar, smellti einum heitum kossi á varir hans og hann gleymdi af hverju hann var kreisí.

En fríið var yndi pyndi, vorum öll saman í 2 vikur, svo fóru allir heim og við vorum tvö eftir í eina rómantíska viku. Keluðum frá morgni til kvölds, ámilli þess sem við pungsvitnuðum í sólbaði. ÓGEÐSLEGA HEITT, veit ekki hvort að hitastigið vara svona hátt eða við siggi svona svakalega hot, en eitthvað var það.

Svo er maður bara kominn aftur á klakann, og farin að safna fyrir næsta sumarfríi sem verður ekkert venjulegt frí, en við ætlum að gifta okkur næsta sumar í Slóveníu, jess hvað okkur hlakkar til.

En fallegastasta vinkona í heimi afmæli eftir 2 daga, djojnar mér í 23 ára klúbbinn, hún rexmachine eins og ég kýs að kalla hana. Hún saknaði mín manna mest meðan ég var í burtu, og ég hennar. En nú er ég komin heim, í tæka tíð fyrir ammælið þannig að hún getur tekið gleði sína á ný. Menningarnótt á morgun, er að vinna eitthvað aðeins frameftir hjá pabba en svo höldum við Siggi í afmælisgleði til þessara fögru fljóðar.

En krampakippir og harðsperrur farnar að gera vart við sig í fingrunum.. hendi myndum inn bráðum og kem með fleiri sögur frá spáni von bráðar.


Posted at 11:16 am by evaruza
Comments (6)  

Jul 19, 2006
Brullup og sólskyn

Halló rottuskottur..

Æji mikið var hún guðfinna mín yndislega falleg. Vissi sko alveg að hún væri með þeim fegurstu en mikið ofsalega var hún eins og engill á laugardaginn, hún var svo falleg.

Við vinkonurnar mættum prúðbúnar í brúðkaupið og ég sver það að ég vissi nú að þessar stelpur mínar væru fallegar en sjitt, það voru allir svo drop dead gordjöss að ég bara missti hökuna niður í gólf og fékk sár og allt..nei djókur, næstum því.

Ef maður hefði fengið borgaði fyrir hvert tár sem maður felldi, þá væri hún Katrín mín orðin vellauðugr arabaauðjöfur, því ég sver það hún hristist öll og skalf og það hefði nú frekar mátt halda að hún væri stödd í miðri jarðarför, heldur en brúðkaupi, svo ákaft grét hún. Að sjálfsögðu felldum við hinar tár, en héldum samt kúlinu uppi. En en nnneeeeiiii, ekki Kata, hún henti kúlinu út á sjó áður en hún kom og sótti það ekki fyrr en eftir athöfnina. Aumingja Dóri, kom þarna ofursvalur með fallegu konuna sína, en hélt næstum á henni út svo ákaft grét hún, hahahahahha

En svo að við snúum okkur nú aftur að athöfninni, að þá geisluðu hjónakornin af gleði, hamingju og ást og þar með erum við orðnar fullorðnar, komnar með börn og ein búin að taka af skarið og gifta sig...sjæsen so stutt allt síðan við vorum pínkupons.

En veislan var líka krúttleg og ég sló að sjálfsögðu í gegn( að eigin mati) sem low profile veislustjóri, Gestur sá eiginleg um allt hard workið(pabbi Guðjóns), en þar er á ferðinni yndislegur maður. Ég fór samt með eina ræðu, geðveikt sniðug...fannst mér.

Svo var yndilegasta mannvera í heiminum að koma heim frá útlandinu, hún sólveig mín og í tilefni af því er saumó hjá mér annað kvöld(fimmtó) bara á sama tíma og venjulega, er búnað senda ykkur sms. Alltaf að hittast..jess gaman

Lilla var líka að koma heim frá Króatíu með mömmu sinni og pabba, og svo fara Debbý og hún til spánar á morgun með m+p..rétt stoppa til að sofa.

Litli heimshornaflakkarinn..Svo sæt, Debbý var að setja inn fullt af myndum á barnaland og þið bara sendið mér sms eða debbý e-mail ef ykkur vantar passw. til að skoða litlu drottninguna.

En ég er farin að lúlla...bæ ðö vei..sumarið er komið loksins og ég gæti ekki verið hamingjuasamari með það. Takk fyrir veðurguðir fyrir að bænheyra mig

Bless

p.s. regína..sorrí að ég braut kökudiskinn þinn, fatta bar ekki hvað þú varst að treysta mér, manneskju með 14 útlimi f.honum.

e.s. ég elska sigga minn, sigga beibí hot stuff

e.e.s var að setja inn 2 albúm


Posted at 05:09 pm by evaruza
Comments (5)  

Jul 14, 2006
brullup


Krakkar...

Ég er ekki sona merkileg eins og þið eruð farin að halda núna.Tölvan okkar er bara búin að vera í fokki og er í viðgerð. Viðrgerðamaðurinn sagði við Sigga að það væru alltof margar myndir saveaðar inn á harða diskinn. Ég sagði bara:,, hey opp jors" Nei djók, sagði það nú ekki, en ég var bara pínu svöl núna.

Síðasta helgi var öruglega sú allra skemmtilegasta og besta í heimi með vinkonum mínum. Fallegustu og bestu stelpum sem til eru í heiminum. Partý hjá Guðrúnu Ösp á laugó og gæsuðum Guffu á sunnó .Hjá Guðrúnu var ógeðslega gaman, og ég set myndir inn um leið og við fáum hlunkinn úr viðgerð. Og á sunnó, var mest kósí og besti dagur í heimi. Fórum allar með litlu gæsina okkar í Lónið, sendum hana í klukkutíma dekur og nudd og svömluðum svo um og sleiktum sólina. Fengum okkur ís og reyndum að ímynda okkur að við værum í útlöndum. Svo skelltum við okkur voða fínt að borða á 101 og kjöftuðum.

Þetta var að vísu doldið skondinn dagur, þar sem 80% af hópnum voru illa þunnar, og svei mér þá ef ein var ekki bara enn í glasi...eða þar til þynnkan hafði yfirhöndina í matnum. Hahahahaha, nefni engin nöfn. En að sjálfsögðu var ég sú ferskasta að vanda, þar sem áfengi fer aldrei,hefur aldrei og mun aldrei fara inn fyrir mínar þokkafullu varir.

Allavega, eftir þessa helgi, var ég illa ástfangin af öllu fallegu og góðu vinkonum mínum, og það staðfestist aftur í gærkvöldi(fimmtudag) þegar við hittumst allar í saumó. Æji bestar, maður er sko sannarlega ríkur að eiga 12 svona góðar vinkonur sem maður getur spjallað við um allt og ekkert.

Svo á morgun er brúðkaupið!!! Fyrsta brúðkaupið í vinahópnum, og ÉG ER VEISLUSTJÓRI!!!! Was ist das!!!! Viðurkenni það alveg að ég er með nettan hnút í maganum, sem ég er að reyna að láta ekki taka yfirhöndina. Ég er nottlega minnst feimin, en málið er bara að ég hef bara einu sinni farið í brúðkaup og það var þegar ég var 7 ára eða eitthvað...kann ekki að vera sona stjóri, en að sjálfsögðu skorast ég ekki undan áskoruninni....

Siggi er að sjálfsögðu búinn að lofa mér því að hlæja á réttum stöðum og finnast ég sú allra skemmtilegasta...jess, elska að eiga sona góðan mann sem er alltaf hægt að treysta á í sona stöðu. Svo er Regína og restin af krúinu líka búnar að lofa að finnast ég fyndin og sýna geysileg viðbrögð við öllu sem ég geri, virkilega gaman að því..
 
Er farin að drulla brúnkukremi og fínerí...undirbúa daginnbæææ

Posted at 03:54 pm by evaruza
Comments (5)  

Jul 3, 2006
Litla gull 1.árs

 

Þá er elsku fallegasta skottan okkar sem er farin að vað útum allt og orðin voðalega fullorðin, að verða 1.árs á morgun. Hvað er það??? Hún er bara nýfædd!!!

Sona var maður einu sinni, lítill og rangeygður

Hér er maður að fara að fá nafnið sitt

Voðalega kát, litla daman, ný farin að brosa 1 mánaða

2gja mánaða með ömmu bestu í heiminum..dúddamía hvað maður er litlur

3 mánaða fegurðardrottning

Tíhíhí, alltaf svo kát

Litli Bangsímoninn örugglega að glápa á sjónvarpið, 5 mánaða

 

6 mánaða dúllurass í bala

 

7 mánaða alltaf brosandi

Þarna er maður orðinn 8 mánaða og alveg farin að vita hvað maður vill

9 mánaða montrass með tönnslurnar sínar

Icelandics Next Top Model 2020, 10 mánaða

 

Litla ástin orðin 11 mánaða og tíminn flýgur áfram, fallegust

Þarna eru bara 3 dagar í að ég verð eins árs skvísa

Finnst ykkur svo skrýtið að maður sé að monta sig af þessari litlu prinsessu.

Fyrir einu ári síðan breyttist lífið. Tók 360°snúning. Ég man eiginlega ekkert hvernig lífið var áður en hún fæddist, en þegar maður hugsar til baka, að þá finnst manni það hafa verið hrikalega tómlegt. Það er alveg ótrúlegt hvað eitt svona lítið kríli getur gefið manni mikið. Bara eitt knús eða slefkoss frá henni, lætur hjartað manns stækka alltaf pínulítið meira. Hún er líka alltaf svo glöð og ánægð. Frekjast áfram með alla og bræðir þá svo með brosinu. Hún er sértsaklega hænd að afa Stanko. Hún gjörsamlega elskar þann kall alveg út af lífinu, og þegar hann er kannski að fara heim, eða eitthvað, að þá grætur hún alveg eins og það sé verið að rífa úr henni hjartað.

EN þetta litla hjartagull er svo lítil og saklaus og einu áhyggjurnar í lífinu eru að ná í cheeriosið sem er lengst undir borði. Hahahahahaha. Elska hana svo mikið meira en allt annað, ég bara hreinlega vissi ekki að það væri hægt að elska svona mikið...

En nóg af væmni... nú er klukkan 02:21 að staðartíma ísland, úti er hellirigning og ógeðisrok. Finnst eins og það sé að koma bara haust. Það er nákvæmlega ekkert sem endir til þess að það sé júlí og sumarið bara rétt að byrja. Veðurspáin á mbl sýnir rigningu fram á laugardag, þá á að sjást til sólar, en byrja að rigna aftur á sunnó. WAS IST DAS???!!!! Fokk

En ég græt ekki, oneeeeeiiiii, þó að fokks veðrið hafi eyðilagt stórskemmtilega esjuferð sem var plönuð með lofthræðslusjúklingnum henni Rex og nýsjálendingnum Natöshu, þó að ég sé orðin illa haldin af kuldakasti og alveg að verða hvít, hef ekki undan af að drulla á mig brúnkukremi...en grenja ég...oooooonnnneeeiiiii.

ÞVí eftir 11 daga er elsku besta guffan mín að farað gifta sig, eftir 22 daga erum við að fara til spánar og eftir 361 dag erum við Siggi fallegasti að farað gifta okkur. JEsssssss allskonar að hlakka til.

En bæææææ

 


Posted at 07:16 pm by evaruza
Comments (12)  

Next Page